Margrét segir samkynhneigð vera val: „Óbólusettir eru líka minnihlutahópur“

Margrét Friðriksdóttir var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hún fór um víðan völl. Margrét er afar opin með að hún sé óbólusett og hefur fengið ýmsar skammir í hattinn fyrir það.

Eins og frægt er birti Margrét einkaskilaboð frá söngvaranum Friðriki Ómari fyrr í vikunni þar sem hann spurði hana hvort hún væri óbólusett. Margrét segist hafa svarað því á þennan hátt:

„Ég svaraði því nú bara „er það ekki bara mitt mál, hvað varðar þig um það“ og eitthvað svoleiðis. Vegna þess að ég tel mig ekki þurfa að upplýsa fólk hvers vegna ég er ekki bólusett. Það er bara mitt mál. Margir fara ekki í bólusetningu vegna þess að það er þeirra val og þetta er náttúrulega bara val. Mér persónulega var ráðlagt frá því samkvæmt læknisráði,“ segir margrét.

Þá greindi hún frá ástæðunum því að baki: „Ég er að glíma við alvarlegan stoðkerfisvanda eftir tvö alvarleg slys og síðan er ég líka með svæsið ofnæmi.“

Aðspurð hvort hún hefði annars þegið bólusetningu kveðst hún ekki viss, en hefði vissulega íhugað það.

Þá segir Margrét að bóluefnin gegn Covid-19 hafi ekki verið rannsökuð og þess vegna séu þau varhugaverð: „Einkennilegt hvernig er hægt að búa til bóluefni þar sem það er ekki búið að einangra vírusinn, þá er í rauninni ekki hægt að búa til bóluefni.“

Rétt er þó að taka fram að þó bóluefni gagnvart kórónaveirum á borð við Covid-19 hafa verið í þróun í fjölda ára, þrátt fyrir að vitanlega sé ekki hægt að þróa bóluefni gegn einstaka afbrigðum kórónaveira fram í tímann, þá er grunnurinn lagður með slíkum þróunum og rannsóknum.

Deila Margrétar og Friðriks hófst með frétt Margrétar inni á vefsíðu hennar, Fréttin.is, sem bar heitið „Vill Friðrik Ómar gula stjörnu á óbólusetta?“ með skírskotun í aðferðir Nasista í seinni heimsstyrjöldinni til þess að aðskilja gyðinga frá öðrum hópum, í þeim tilgangi að pynta þá og drepa.

Tilefni fréttarinnar var það þegar Friðrik sagðist ekki vilja fá óbólusetta einstaklinga á tónleika og viðburði á sínum vegum. Þá vill hann að Ísland innleiði bólusetningarpassa, líkt og svo margar Evrópuþjóðir hafa tekið upp á.

Friðrik brást ekki vel við því, en fannst þó verra þegar Margrét bar saman bólusetningu við samkynhneigð – þetta tvennt væri bara val:

„Samkynhneigð er minnihlutahópur og óbólusettir eru líka minnihlutahópur í íslensku samfélagi. Ég lagði þetta saman vegna þess að mér fannst skrítið að maður sem hefur lengi talað fyrir réttindum samkynhneigðra og að sá minnihlutahópur lendi ekki í ofsóknum eða útskúfun þá fannst mér þetta sambærilegt. Óbólusettir eru í dag að lenda í ofsóknum, sem er stórhættuleg þróun,“ sagði Margrét þegar hún var beðin um að útskýra þau ummæli sín nánar.

Margrét greinir frá því að Friðrik hafi spurt hana beint hvort samkynhneigð væri val. Hún svaraði því á þennan veg: „Ég sagði að stundum væri það val og vísaði honum á grein á DV með Óskari Steini sem sagði að þegar ekkert gekk í stelpumálum þá sneri ég mér að strákum. Þannig að greinilega er stundum samkynhneigð val.“

Margrét var því næst spurt hvort það væri ekki gagnrýnivert að hún hefði birt einkaskilaboð á opinberum vettvangi.

„Það finnst mér ekki, vegna þess að þetta eru ekkert venjuleg einkaskilaboð. Þetta er þjóðþekktur maður sem spyr mig hvort ég sé óbólusett. Þetta er eins og ef Björk myndi senda ykkur skilaboð um hvort þið væru bólusettir eða hvaða kynhneigð þið væruð með. Þetta er svolítið persónuleg spurning og mér var brugðið. Ég svaraði henni og hann svaraði ekki strax til baka þannig að ég hugsaði „ég kannski birti þetta.“ Þetta er rosa persónuleg spurning sem engum varðar um nema mig,“ sagði Margrét.