Margrét Friðriksdóttir, stjórnandi á Stjórnmálaspjallinu og verðandi fjölmiðlakona, greinir frá því á Facebook síðu sinni í gærkvöldi að hún hafi unnið í Eurojackpot.
Eurojackpot er eins og flestir vita einn af stærri vinningunum sem Íslendingum standa til boða. Hæsta verðlaunaféið þar er oftar en ekki gjarnan hærra en sjálfur potturinn í Víkingalottóinu, enda fleiri um hituna.
„Ég vann 1200 kr. í Eurolotto í gær fyrsti vinningurinn minn í mörg ár,“ skrifar Margrét, augljóslega himinlifandi á Facebook síðu sína í gærkvöldi.
„Samt í 700 kr mínus en góðir hlutir gerast hægt,“ skrifar hún svo og lætur broskall fylgja.