Margrét Friðriks: „Það verður svolítið sjokkerandi það sem kemur fram í dag“

Í dag fer fram aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdar, formanns Solarins, gegn Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar. Málið snýr að meintum morðhótunum Margrétar í garð Semu eru fyrir rúmum fjórum árum.

Margrét ræðir málið í samtali við Fréttablaðið og segist hún vera bjartsýn fyrir aðalmeðferðina. „Miðað við fyrirliggjandi gögn og það sem hefur bæst við, það verður svolítið sjokkerandi það sem kemur fram í dag,“ segir hún við blaðið og kemur það væntanlega betur í ljós í dag hvað hún á við.

Margrét segir mikilvægt að málið fái efnislega umræðu fyrir dómstólum. Kveðst hún bjartsýn á að málið fari henni í hag og segir hún að margt áhugavert muni koma fram í dag.

„Það verður mjög sjokkerandi fyrir þennan hóp sem er að ráðast að mér. Þau gengu svolítið langt í ruglinu, það verður að segjast.“

Nánar á vef Fréttablaðsins.