Margrét Frið­riks segir þennan Face­book að­gang á­reita sig stöðugt: „Málið komið til lög­reglu“

Margrét Frið­riks­dóttir, rit­stjóri vef­síðunnar Fréttin.is, biður fólk um að til­kynna fals að­ganginn Brjánn Magnús­son en sam­kvæmt henni er að­gangurinn búinn að vera á­reita hana stöðugt.

„Endi­lega reportið fals að­ganginn Brjann Magnús­son á­reiti hans minn garð er einnig komið til lög­reglu og unnið að því að rekja ip töluna, það er lág­mark fyrir alla netniðinga að skrifa undir réttu nafni og mynd og svara fyrir sitt refsi­verða at­hæfi hjá dóm­stólum, þannig virkar réttar­kerfið. Takk fyrir og eigið góðan dag,“ skrifar Margrét inn í Face­book hópinn Það sem enginn viður­kennir en yfir 20 þúsund manns eru í hópnum.

„Það er lág­mark að koma vel fram, og vera ekki með dóna­skap og blóts­yrði við fólk, ef þú vilt fá aug­lýs­endur,“ svara einn við þræði Margrétar og þar við um frétt Frétta­blaðsins um að Margrét hefur kvartað yfir því að enginn vilji aug­lýsa á vef sínum.

„Ég kem al­mennt alltaf vel fram við fólk, en þessi var farin að kalla mig öllum illa nöfnum og hóta mér, ég svaraði því á móti en hefði kannski átt að sleppa því, svona aumingjar nærast á slíku virðist vera,“ svara Margrét.