Margrét Friðriksdóttir, ritstýra Frettin.is er orðlaus yfir grunnskólum landsins. Hún óttast á hvaða vegferð æska landsins er og segir skólana standa fyrir úrkynjun sem skilar sér í einkennilegum hugsanaheimi þeirra.
Margrét lét skoðun sína í ljós eftir að hún sá færslu nemanda í Langholtsskóla í hverfishóp íbúa á Facebook. Nemandinn óskaði eftir því að fá gefins eyrnalokka og föt fyrir dúkkuna sína en nemandinn var að vinna verkefni í skólanum. Með færslunni birti nemandinn mynd af dúkkunni.
„Þetta er birtingarmynd guðleysis og wokeisma í grunnskólum borgarinnar, Langholtsskóli bannaði kristinfræðslu i þeirri mynd sem hún var og bannaði einnig litlu jólin og heimsóknir skólabarna á aðventuhátiðina, urkynjunin greinilega fljót að skila sér, takið eftir barnið/nemandinn setur lokk í kynfæri dúkkunnar og geirvörtur,“ skrifar Margrét.
Vinir Margrétar taka undir með henni þá sér í lagi blaðamaðurinn Erna Ýr Öldudóttir sem spyr: „Eru pervertar að kenna börnum í skólum landsins?“