Margrét Friðriksdóttir, frumkvöðlafræðingur og eigandi vefsins Fréttin.is, lætur engan bilbug á sér finna í ferðalögum þó sjálf sé hún óbólusett.
Margrét er í stuttu en áhugaverðu spjalli í Fréttablaðinu í dag þar sem hún segir meðal annars að óbólusettir muni ekki láta neinn bilbug á sér finna nú þegar farið er að hylla undir frjáls ferðalög milli landa eftir kórónuveirufaraldurinn.
„Ég þekki nú marga sem eru óbólusettir og þeir eru ekki að láta þetta stoppa sig í ferðalögunum,“ hefur Fréttablaðið eftir Margréti. Hún skellti sér sjálf til Tenerife á dögunum með dóttur sinni en skömmu eftir heimkomuna var hún sektuð um 100 þúsund krónur þar sem þær mæðgur létu undir höfuð leggjast að fara í skimun fyrir heimferð. Margrét er ekki sátt við það og segir að verið sé að mismuna fólki.
Margrét segir að óbólusettir séu óhræddir og raunar láti „hrædda fólkið“ bólusetja sig. Þeir óbólusettu lifi ekki í neinum ótta og fari til útlanda eins og aðrir.
„Það þýðir heldur ekki að lifa í ótta. Það veikir ónæmiskerfið að lifa í ótta og fólk ætti að huga að því líka.“