Margrét Erla bendir á tví­skinnung í öryggi­leit í Kefla­vík: „Þakk­lát fyrir að öryggis­verðir sinni sínu starfi. En kommon!“

Fjölmiðlakonan burlesk dansarinn, Margrét Erla Maack, segir ís­lenska öryggis­verði á Kefla­víkur­flug­velli mun meira vakandi en kollegar þeirra á He­at­hrow en hins vegar sé full langt gengið á köflum.

„Eitt sinn var ég á bur­lesk-sýningar­ferða­lagi. Ein í hópnum var með stór­kost­legt Ron Bur­gun­dy-at­riði, þar sem hún var klædd í vín­rauð föt, með hár­kollu og yfir­varar­skegg og fækkaði fötum á sama tíma og hún spilaði á þver­flautu. Í lokin kom eldur úr þver­flautunni. At­riðið fékk mikil hlátra­sköll og standandi lófa­klapp,“ skrifar Margrét í pistli í Frétta­blaðinu.

„Á heim­leiðinni, í bið­röð í öryggis­leit, segir dans­mærin: „Fokk stelpur. Ég er með dína­mít­bóm­ullina í þver­flautu­töskunni!“ Sem betur fer tók ein­hver þver­flautu­töskuna og opnaði hana, en spurði ekki út þennan sak­leysis­lega flóka, hélt lík­lega að þetta væri þver­flautut­vistur. Dans­mærin fór því með dína­mítið í hand­far­angri og náði að skila restinni til töfra­mannsins.“

„Mér varð hugsað til þessarar sögu á ferða­lagi í sumar. Barnið mitt verður pirrað og erfitt í flutningum ef hún er svöng, svo með mæðra­tips-viskunni pakkaði ég á­vaxta- og skyrskvísum í hand­far­angur. Ís­lensku öryggis­verðirnir eru mun meira vakandi í vinnunni en kollegar þeirra á He­at­hrow. Ég mátti fara með á­vaxtask­vísurnar í gegn, því þær væru barna­matur en alls ekki skyrskvísurnar. „Það er hægt að kaupa skyr inni,“ sagði ung kona, sem var ein­fald­lega að sinna sínu starfi,“ skrifar Margrét.

„Vissu­lega var hægt að kaupa skyr í brott­farar­salnum, en ekki í þessum hand­hægu barn­vænu um­búðum, að minnsta kosti fann ég þær ekki á sama tíma og ég var að passa að týna ekki tveggja og hálfs árs dína­mít­sprengjunni minni. Ég held ég tali fyrir hönd allra for­eldra þegar ég segi: Um­búðirnar gera þetta að barna­mat, ekki inni­haldið. Ég er þakk­lát fyrir að öryggis­verðir sinni sínu starfi. En kommon!“ skrifar Margrét að lokum.