Margrét Gauja Magnúsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi, jökla- og akstursleiðsögukona og athafnakona hjá Siðmennt, er býsna virk á Twitter og skrifar skemmtilega pistla.
Hún sagði frá því í morgun að hún hafi verið úti á landi um daginn að gifta þegar rútu var lagt fyrir bílinn hennar sem er af gerðinni Toyota Hilux. Smá rifa var þó fyrir aftan bílinn til að bakka í gegnum og gerði Margrét sig líklega til að bakka í gegn þegar bankað var á gluggann.
„Rútubílstjórinn, yngri en ég, bankaði á rúðuna og spurði: „Á ég að bakka bílnum út fyrir þig elskan?“ Langaði að éta af honum hausinn en brosti og sagði nei takk.“
Einn af fylgjendum Margrétar segir að hún hefði átt að spyrja hann á móti hvort hún ætti að kenna honum að leggja rútu.