Margrét ekki enn komin með Covid: „Ég er greinilega ein af þeim“

Margréti Friðriksdóttur frumkvöðlafræðingi gengur illa að ná sér í Covid-19. Eins og greint var frá milli jóla og nýárs greindust báðar dætur Margrétar með veiruna. Sagði Margrét, sem er óbólusett, í kjölfarið að hún hafi reynt að smitast af dóttur sinni með því að drekka úr glasinu hennar.

Miðað við nýja færslu sem Margrét birti í gærkvöldi hefur það ekki gengið.

„Nú eru báðar dæturnar búnar að fá Covid en ég hinsvegar greinist ekki smituð og ekki með nein einkenni þrátt fyrir að ég sé mjög útsett hér á heimilinu,“ segir Margrét í færslunni í gærkvöldi.

Hún bætti við að yngri stelpan hennar væri orðin góð en sú eldri væri með kvef.

„Hún veiktist aðeins meira en hin, ég er að vísu búin að gefa þeim Ivermectin, D-vítamín, lýsi, C-vítamín og Zink eins og Indverjarnir gera og náðu að útrýma Covid og alvarlegum veikindum með þessari formúlu í 241 milljón manna héraðinu Uttar Pradesh,“ segir Margrét og bætir svo við:

„Ég vil án gríns núna láta rannsaka blóðið í mér og fá skýringar hvers vegna ég er ekki að smitast þrátt fyrir margar tilraunir, sumir virðast vera með náttúrulegt mótefni í líkamanum sem gæti reynst svarið við hinu sanna mótefni sem við öll viljum fá ekki satt? Mér skilst að 10-15% heimsins séu algerlega ónæmir fyrir flensunni og ég er greinilega ein af þeim. Þetta þýðir ef ég get ekki smitast þá get ég heldur ekki smitað útfrá mér.“

Ekki liggur fyrir hvað Margrét hefur fyrir sér í því að hún geti ekki smitast af veirunni.