Margrét brjáluð: Vísað út úr H&M fyrir að vera ekki með grímu – Ætlar að leggja fram kæru í dag

Margréti Friðriksdóttur var vísað út úr verslun H&M í Kringlunni í gær fyrir að vera ekki með grímu fyrir andlitinu á sér. Tvær dætur Margrétar voru með í för og segir Margrét að þeim hafi verið verulega brugðið vegna afskipta öryggisvarða.

Margrét ræddi málið í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi en hún var jólagjafainnkaupum í Kringlunni þegar öryggis­vörður á vegum Securitas kom upp að þeim og tjáði Margréti að það væri grímu­skylda inni í búðinni.

„Hann bendir mér á að ég eigi að vera með grímu og ég segi við hann: „Farið þið ekki eftir sótt­varnar­reglum? Það er ekki grímu­skylda nema eins metra reglan náist ekki.“ Þetta stendur bara skýrt í lögunum, þetta á við nudd­stofur, hár­greiðslu­stofur og þess háttar, þetta á ekki við í stærri rýmum,“ segir Margrét við Fréttablaðið.

Hún segir að stuttu síðar hafi öryggisvörðurinn snúið aftur með sex kollegum sínum og þeir hafi gert sig líklega til að kasta þeim út úr búðinni.

„Dóttir mín er fimm­tán ára og hún verður bara mjög skelkuð af því þeir um­lykja mig allir, í þessum búningum sínum, og ég bendi þeim aftur á að þetta séu sótt­varnar­reglurnar. Þá segja þeir að þeir séu að vinna fyrir H&M og það séu sér­reglur í H&M.“

Margrét yfirgaf búðina skömmu síðar og segir hún að öryggisverðirnir hafi elt hana og dætur hennar. Margrét ákvað þá að hringja á lögregluna og komu lögregluþjónar á staðinn skömmu síðar.

Hún segist hafa sýnt lög­reglunni sótt­varnar­reglurnar sem eru í gildi til 22. desember máli sínu til stuðnings. „Þeir voru bara sam­mála mér: „Þetta er rétt hjá þér Margrét, þú ert ekkert að brjóta nein lög og reglur hér“ og svo ræddu þeir við þá og svo aftur við mig og tóku skýrslu,“ segir Margrét.

Margrét segir við Fréttablaðið að hún sé slegin yfir atvikinu og yngri dóttur hennar líði illa vegna þess. Hún hyggst kæra málið til lögreglu í dag og kalla eftir upptökum úr öryggismyndavélum.

Eins og margir vita hefur Margrét verið gagnrýnin á sóttvarnaraðgerðir yfirvalda og notar helst ekki grímu nema tilneydd. Í samtali við Fréttablaðið segist hún þó fylgja öllum lögum og reglum í hví­vetna og notar grímur þar sem lögin kveða á um slíkt. Þá finnst henni ljóst að öryggis­verðirnir sem hún lenti í hafi ekki mikla þekkingu á sótt­varnar­reglum.

Nánar á vef Fréttablaðsins.