Margrét Friðriksdóttir, sem í gær var dæmd í 30 daga skilorðsbundið vegna hótana í garð Semu Erlu Serdar, er allt annað en sátt við dóminn sem féll í gær.
Margrét lét allt flakka í færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hún fór meðal annars ófögrum orðum um dómarann í málinu. Í færslu sinni sagði hún meðal annars:
„Þetta siðblinda pakk er auðsjáanlega að kalla eftir stríði sem þau munu fá, því ranglæti er eitthvað sem ég mun aldrei samþykkja, og enginn vill lenda á þeim stað.“
Margrét hafði í hótunum við Semu Erlu fyrir utan veitingastaðinn Benzinface á Grensásvegi í Reykjavík þann 5. ágúst 2008. Sagði hún meðal annars: „Ég drep þig fokking ógeðslega tíkin þín“ eða „I'm gonna kill you, you fucking bitch.“
Daginn eftir atvikið sendi Margrét Semu Erlu skilaboð þar sem hún baðst afsökunar á atvikinu. Margrét neitaði sök í skýrslutöku og túlkaði orðaskipti sín við Semu Erlu sem móðganir frekar en hótanir.
Í færslu sinni segir Margrét að vitni hafi staðfest vitnisburð hennar en ekki hafi verið tekið mark á þeim. Hún segir að dómnum verði svarað og boðar áfrýjun.
„Frumskógarlögmál stjórna Íslandi miðað við þennan úrskurð, svo mikið er víst.“