Margrét Schram, systir Bryndísar Schram, birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi skilaboð sem hún segir að Kolfinna Baldvinsdóttir, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar, hafi sent henni á þriðjudag.
Eins og kunnugt er hófst aðalmeðferð í máli Jóns Baldvins Hannibalssonar gegn Aldísi Schram og RÚV í gær. DV sagði frá því í gær að nokkur æsingur hafi orðið í dómsalnum.
Samkvæmt fréttinni hafði Kolfinna nýlokið við að gefa skýrslu í máli sínu þegar Margrét var kölluð inn sem vitni. Á sama tíma ætlaði Aldís að víkja úr salnum og mættust systurnar þá í dyragættinni. Í fréttinni kom fram að Aldís hafi rekist í Kolfinnu sem féll og greip í hurðina í salnum. Nokkur vel valin orð eru sögð hafa fallið í kjölfarið.
Í skýrslu Kolfinnu hafði hún sagt ásakanir gagnvart föður sínum eiga rætur að rekja til meintrar geðveiki Aldísar. Sagði hún Aldísi vera „djöfullinn í mannsmynd“ og að hún hafi í nokkur skipti þurft að hafa afskipti af henni vegna geðrofs.
Margrét birtir Facebook-skilaboð sem virðast hafa borist frá Kolfinnu að kvöldi þriðjudags, degi fyrir aðalmeðferðina. Í þeim stendur:
„sæl Margrét – við hittumst á morgun
ég veit ekki alveg að hverju þú leitar
öðru en að næra þitt hatur“
Í færslu sinni segir Margrét einfaldlega: „Svona gerir maður ekki!“ og undir henni er myndin af skilaboðunum. Í athugasemdum undir færslunni bætir Margrét við að hún hafi látið lögfræðing sinn vita: „Hún er vitni eins og ég og þá má ekkert svona!.“