Margrét birtir einkaskilaboð Friðriks Ómars – Ekki velkomin á tónleika

Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttin.is, segir að hún sé ekki lengur velkomin á tónleika hjá Friðriki Ómari Hjörleifssyni, vegna þess að hún er ekki bólusett gegn Covid-19.

Margrét birtir á Facebook einkaskilaboð þar sem hann spyr hana hvort hún sé bólusett.

Þess má geta að Helga Þóris­dótt­ir, for­stjóri Per­sónu­vernd­ar, hefursagt við MBL að skjá­skot af einka­skila­boðum og dreif­ing þeirra á net­inu, án samþykk­is, sé hegn­ing­ar­laga­brot.

Margrét er ekki smeyk við slíkt, birtir skjáskot af skilaboðunum og segir: „Friðrik Ómar sendir mér einkaskilaboð og spyr hvort ég sé óbólusett, er þetta í lagi vill hann kannski líka vita í hvaða blóðflokk ég er?“

Hún segir í athugasemd að „svona fasismi“ eigi fullt erindi við almenning.

Margir vina hennar fara niðrandi orðum um kynhneigð Friðriks Ómars, Margrét kippir sér lítið upp við.

Friðrik Ómar hefur sagt að hann vilji ekki óbólusett fólk á tónleika hjá sér, Margrét svarar því sjálf hvort hún sé bólusett eða ekki:

„Það er allavega ljóst að ég er ekki velkomin á tónleika hjá honum hann er kannski að senda svona á fleiri til að setja á bannlistann?“