Margrét aftur smituð af Covid: „Þetta er öðruvísi núna“

Margrét Gauja Magnúsdóttir athafnakona er aftur smituð af Covid-19. Því er ekki frá sögum færandi fyrir utan að Margrét glímdi við gífurleg eftirköst af fyrra smiti. Var hún með þeim fyrstu sem tjáði sig um langvarandi eftirköst af sjúkdómnum.

„Ég var í flottu formi og fór vel með mig þegar ég smitaðist. Var búin að vera áfengislaus, reyklaus og lifði heilbrigðum lífstíl um tíma,“ hafði DV eftir henni í fyrra.

„Minn Covid-19 vírus fór beint í heilann á mér með þeim afleiðingum að ég þjáðist af taugaverkjum, síþreytu og allskonar öðrum ömurlegum einkennum í tæpt ár. Ég er með ör eftir þetta t.d skerta heyrn á hægri eyra o.fl.“

Margrét Gauja bendir á að eftirköstin hefðu ekki orðið svona slæm né varað svona lengi ef hún hefði verið bólusett gegn veirunni, en hún smitaðist löngu áður en bóluefni kom fram. Biðlaði hún til andstæðinga bólusetninga um að hugsa sig tvisvar um.

Margrét smitaðist í mars 2020 og það var ekki fyrr en í janúar 2021 sem hún gat aftur drukkið Coca-Cola.

Nú er hún aftur smituð af veirunni skæðu:

„Ég er komin aftur með Covid-19. Er lasin og við öll á heimilinu, nema elsta dýrið náði að flýja,“ segir hún á Twitter.

„Ég er búin að lifa mjög heilbrigðum lífsstíl síðan ég smitaðist í mars 2020. En ég er ekki búin ad halda dagbók...damn it... En þetta er öðruvísi núna, þetta er flensa núna.“