Margir vilja að Logi verði borgarstjóri: „Í hverri viku nefnir einhver þetta við mig“

„Mér finnst póli­tík að mörgu leyti skemmti­leg. Það er áhuga­vert að fá að tak­ast á um hug­mynd­ir og skipu­leggja framtíð heill­ar borg­ar,“ segir Logi Bergmann Eiðsson, fjölmiðlamaður til margra ára, í grein sinni í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.

Þar tjáir Logi sig um orðróm þess efnis að hann ætli að gefa kost á sér fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Nafn Loga hefur skotið upp kollinum í umræðunni undanfarna mánuði en það stefnir allt í spennandi kosningar í borginni. Í pistli sínum segir Logi að fjölmargir hafi komið að máli við hann að undanförnu og hvatt hann til að bjóða sig fram.

„Fyr­ir nokkr­um árum var stofnuð síða á Facebook sem hét: Per­sónu­legt fram­boð Loga Berg­manns til borg­ar­stjóra. Voða sniðugt grín en það virðist hafa komið þess­ari hug­mynd að hjá fólki að ég væri ein­mitt maður­inn til að standa í þessu. Og ef ekki ég þá ástkær eig­in­kona mín.“

Logi viðurkennir að hann hafi hugsað um þetta í smá stund. „Mátaði mig í hug­an­um að stíga á sval­irn­ar við ráðhúsið og horfa yfir veldi mitt. Klippa á borða og dusta rykið af hug­mynd­um um golf­völl í Viðey. Og gott ef ég skrifaði ekki líka pist­il um þetta í blaðið mitt. En svo sneri ég aft­ur að raun­veru­leik­an­um og ákvað að þetta myndi ég aldrei gera. Það hef­ur sem sagt ekki breyst.“

Logi segir að margir hafi talað við hann um þetta.

„En það kem­ur ekki í veg fyr­ir að í hverri viku nefni ein­hver þetta við mig, oft bláókunn­ugt fólk sem hring­ir eða send­ir mér skila­boð. Vænsta fólk sem finnst geggjuð hug­mynd að ég gangi í málið og mér þykir í raun og veru vænt um að það sýni mér þetta traust. Flest­ir hafa hugsað þetta raun­sætt og benda mér á að ég þurfi að fara að spá í fram­boðsmál og und­ir­búa mig. Einn og einn virðist svo halda að ég geti bara mætt í ráðhúsið og sagt: Jæja, hvar er skrif­stof­an mín?“

Logi segir að pólitík sé að mörgu leyti skemmtileg en hann getur ekki ímyndað sér að það sé gaman að starfa í borgarmálunum.

„Í grunn­inn er borg­in eins og stórt hús­fé­lag. Það þarf að tak­ast á um ýmis mál. Á að fá menn til að þvo glugg­ana? Hvernig eiga jóla­skreyt­ing­arn­ar að vera og hvenær eiga þær að fara upp? Eig­um við að setja upp hleðslu­stöð og hvar á hún þá að vera? Þarf ekki að setja nýtt teppi á stiga­gang­inn? Hvað eig­um við að borga mikið í hús­sjóðinn á mánuði? Bara svona þetta helsta sem venju­leg hús­fé­lög þurfa að eiga við. Sinn­um tíu þúsund,“ segir Logi og bætir við að þetta húsfélag, það er borgin, sé í frekar vondum málum.

„Þrátt fyr­ir allt þetta eru borg­ar­mál mér hjart­ans mál eins og ég held að eigi við um flest okk­ar sem búum í Reykja­vík. En þetta virk­ar bara alltof leiðin­legt, tíma­frekt og óskil­virkt fyr­ir fólk sem hef­ur það mark­mið í líf­inu að leita ekki uppi leiðindi. Svo ég segi bara eins og mamma: Já takk, en nei takk.“