Margeir sendir lög­reglunni pillu vegna við­bragðs­leysis - árásmaðurinn enn með ökuréttindi

Tón­listar­maðurinn Margeirs Sveins­son sem lenti í því að öku­maður reyndi að keyra hann niður viljandi í mið­bæ Reykja­víkur meðan hann var að hjóla er ekki sáttur með við­brögð lög­reglunnar í málinu.

„Hvar annars staðar en á Ís­landi fær maður sem ekur um á tveggja tonna dráps­tæki og er viljugur til þess að keyra ó­varða veg­far­endur niður viljandi að ganga laus? Engin til­kynning komin að það sé þó amk búið að svipta við­komandi öku­réttindunum,“ skrifar Margeir á twitter og taggar lög­regluna í færslunni.

Frétta­blaðið greindi frá því í vikunni að lög­reglan sé ekki að rann­saka málið sem um­­­ferðar­ó­happ heldur líkams­­á­rás.

Í sam­tali við DV á mánu­daginn sagði Margeir frá á­rásinni en hann var hjólandi milli tveggja bíla þegar hann varð var við að öku­­maður aftari bílsins fór að þenja bílinn í aug­­ljósum pirringi.

„Ég var á á­­gætis hraða og var ekki að tefja hann með neinum hætti. Fyrir framan mig var auk þess annar bíll þannig að hann hafði ekki komist leiðar sinnar þó að ég hefði vikið,“ segir Margeir.

Öku­­maðurinn keyrir síðan aftan á hjól Margeirs þannig að hann hentist af hjólinu og í götuna. „Mér brá náttúru­­lega veru­­lega en náði svo áttum, stóð upp og gekk að bílnum til að ræða við öku­manninn og hvað honum hefði gengið til,“ segir Margeir.

Öku­­maðurinn gaf þá í og keyrði yfir hjól Margeirs til að komast leiðar sinnar. Þar sem allir vegir voru honum lokaðir keyrði hann inn göngu­­götuna á Lauga­veginum til að komast undan.