Marel á toppnum: fimm verðmætustu fyrirtækin í kauphöllinni

Marel er langverðmætasta fyrirtækið í kauphöllinni Nasdaq Iceland, en virði þess er 448 milljarðar króna. Arion banki er í öðru sæti á 135 milljarða. Í viðskiptaþætti Jóns G. í kvöld verður farið yfir 5 verðmætustu fyrirtækin í Kauphöllinni en verulegur munur er á markaðsvirði Marels, sem er í fyrsta sæti, og Haga sem eru í því fimmta. 

Markaðsvirði fimm efstu fyrirtækjanna við lokun markaðarins sl. mánudag lítur svona út: Marel  448 milljarðar kr., Arion banki 135 milljarðar., Brim 65 milljarðar., Reitir 52 milljarðar og Hagar 48 milljarðar kr.

Viðskiptaþáttur Jóns G. er að venju snarpur og efnismikill. Gestir þáttarins í kvöld eru þau Eva María Þórarinsdóttir Lange, framkvæmdastjóri Pink Iceland, Bjarni Snæbjörn Jónsson stjórnunarráðgjafi og Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins.

Öflugur þáttur á dagskrá kl. 20:30 í kvöld.