Már segir suma lækna reiða yfir því að landið skuli opnað

Már Kristjáns­son, yfir­læknir á smit­sjúk­dóma­deild Land­spítalans, segir að mjög skiptar skoðanir séu um það innan heil­brigðis­kerfisins að opna landið fyrir ferða­mönnum á nýjan leik.

Milli­landa­flug hefur nánast legið niðri með öllu síðustu vikur vegna CO­VID-19 far­aldursins. Í síðustu viku á­kváðu stjórn­völd þó að opna landa­mærin frá og með 15. júní en þó með á­kveðnum tak­mörkunum. Þeir ferða­menn sem koma til landsins, bæði inn­lendir og er­lendir, þurfa að gangast undir skimun við komuna til landsins eða fram­vísa vott­orði.

Már ræddi málið við Morgun­vaktina á Rás 1 í morgun og þar sagði hann að margir væru hugsi vegna þessa. „Margir af mínum kollegum eru mjög hugsi um þetta og jafn­vel reiðir að þetta skuli vera gert,“ segir hann.

Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir lét hafa eftir sér að loknum blaða­manna­fundi í síðustu viku að tíma­punkturinn til að opna landa­mærin væri núna á meðan ferð­manna­staumurinn er lítill. „Þannig getum við reynt af fremsta megni að vernda okkar íbúa og fylgst betur með hvernig þetta gengur. Mér finnst þetta skyn­sam­leg á­kvörðun og í takt við það sem ég hef verið að segja.“

Már sagði við Morgun­vaktina, að því er segir í frétt RÚV um málið, að tíminn eigi eftir að leiða í ljós hversu far­sæl á­kvörðun þetta verður. Við­brögð fólks séu til marks um ótta að við gætum hugsan­lega verið að kalla yfir okkur hörmungar.

„Sem kann að vera að við séum að gera í ljósi þess sem við þekkjum utan úr heimi, þar sem sam­fé­lög fóru hrylli­lega illa út úr þessu. Við virðumst hafa sloppið fyrir horn enn þá alla vega. Mér finnst þetta vera rétt­mæt til­finning hjá fólki að þetta muni kannski verða eitt­hvað hræði­legt tíma­bil. Það er alveg skiljan­legt,“ sagði Már sem sagði jafn­framt mikil­vægt að setja okkur í stellingar og vera undir­búin. Þannig verði reynt að draga úr hugsan­legum á­hrifum eins og kostur er.