Már deilir mikilvægri sögu: Heyrði sagt í miklum æsingi: „Svona svona færðu þig koma svo“

„Mig langar til að segja frá miður skemmtilegu atviki sem við Max urðum fyrir í dag.“ svona hefst færsla tónlistarmannsins og sundkappans Más Gunnarssonar sem birtist í færslu á Facebook í dag. Þar greinir hann frá nokkru sem hann og leiðsöguhundurinn hans Max lentu í, en Már er blindur.

Már var úti að borða og þeir félagarnir voru að yfirgefa veitingastaðinn þegar þeir heyrðu sagt í miklum æsingi: „Svona svona, færðu þig koma svo,“

Hann segir að maðurinn sem hafi sagt þetta hafi í kjölfarið potað í Max og á meðan hafi hann reynt að átta sig á því sem væri í gangi.

„Maðurinn og hans fólk voru sem sagt á leiðinni í básinn til hliðar við okkur og í leiðinni töluðu þau um hvað þau væru ekki hrifin af hundum. Ég snéri mér að viðkomandi og sagði að ef hann þyrfti að koma einhverju á framfæri gæti hann alveg bara talað við mig“ skrifar Már og bætir við að hann hafi sagt: „Þegar þú ert að reyna að hafa samband við einhvern sem ekki sér þá væri fallega gert að vera bara nice.“

Þá hafi maðurinn brugðist illa við og sagt að Már hafi snúið baki í hann. „Þú snérir baki í mig ég gat engan veginn séð að þú ert blindur,“ Már segist þá hafa bent á að hundurinn væri merktur leiðsöguhundur og hann eigandinn væri með staf.

„Aðkomumaðurinn sagði þá við mig að ég ætti nú að hafa vit á því að standa ekki á miðjum gangi! Hefði veitingastaðurinn verið fullur af fólki sem hann var ekki og hvergi pláss til að athafna sig þá væri þetta samt ekki rétta leiðin til að eiga í jákvæðum og virðingarfullum samskiptum.“ skrifar Már að lokum og biðlar til fólks að bera virðingu fyrir leiðsöguhundum. Svo sannarlega mikilvæg skilaboð.