Manuela á bata­vegi: „Risa­stórt á­fall fyrir mig og alla í kringum mig“

Manuela Ósk Harðar­dóttir, fyrrum Ung­frú Ís­land og fram­kvæmda­stjóri fegurðar­sam­keppninnar Miss Uni­ver­se Iceland, fékk heila­blóð­fall fyrir um þremur vikum en er nú á bata­vegi. Þetta kemur fram í við­tali Frétta­blaðsins við Manuelu.

„Í rauninni er þetta bara risa­stórt á­fall fyrir mig og alla í kringum mig. Þetta er eitt­hvað sem maður hræðist en samt hugsar maður að þetta komi ekki fyrir mann,“ segir Manuela klökk.

„Þetta gerði í raun engin boð á undan sér en ég var búin að vera með mikinn höfuð­verk þennan dag. Ég var sem betur fer ekki ein heldur var ég í heim­sókn hjá frænku minni,“ upp­lýsir Manuela sem fer fögrum orðum um frænku sína og segir hana hafa bjargað lífi sínu með skjótum við­brögðum.

Manuela missti málið og máttinn í líkamanum við heila­blóð­fallið en komst fljótt undir læknis­hendur og fékk við­eig­andi með­ferð.

Á tauga­deild yfir há­tíðirnar

Að sögn Manuelu hafa líkam­legu ein­kennin gengið að mestu til baka og sam­kvæmt læknum hennar mun hún ná sér að fullu. „Líkam­legu ein­kennin gengu til baka á nokkrum dögum þrátt fyrir smá haus­verk og þreytu, en þetta tekur lang­mest á and­legu hliðina. Við svona á­fall fylgir rosa­lega mikill kvíði þegar lífið kippir fótunum svona undan manni.“

Að­spurð segir Manuela að enn sé ó­ljóst hvað hafi valdið heila­blóð­fallinu en hún hafi dvalið á tauga­deild Land­spítalans í tvær vikur í rann­sóknum en engin niður­staða sé komin, enn sem komið er.

„Ég er í ó­trú­lega góðum höndum hjá æðis­legum læknum og er komin í endur­hæfingu á Grens­ás þrisvar sinnu í viku, það er bara englar sem vinna þar,“ segir Manuela þakk­lát en þar mætir hún í sjúkra­þjálfun, til iðju­þjálfa, næringar­fræðings og sál­fræðings.

Styður Hrafn­hildi á hliðar­línunni

Líkt og greint var frá á dögunum átti Manuela að vera stödd í New Or­leans á­samt Hrafn­hildi Haralds­dóttur sem keppir fyrir Ís­lands hönd í Miss Uni­ver­se sem fer fram annað kvöld.

„Þetta er eins heart­breaking eins og það gerist þar sem ég legg svo mikið hjarta í þetta verk­efni. En ég styð hana eins og ég get á hliðar­línunni,“ segir Manuela ein­læg.

Fréttablaðið/Instagram