Mánudagurinn mikli – mælaborðin urðu græn

Mánudagurinn fer í sögubækurnar í kauphöllum heimsin. Öll mælaborð kauphalla urðu græn á litinn eftir að bandaríski lyfjarisinn Pfizer tilkynnti að nýtt bóluefni við COVID 19 væri á lokametrunum. Þannig hækkuðu öll félögin í Kauphöllinni hér á landi; Nasdaq Iceland. Um tíu þekktir erlendir lyfjarisar eru sagðir vera með bóluefni gegn faraldrinum á lokaspretti.

Jón G. ræðir þennan sögulega dag í Kauphöllinni við Stefán Brodda Guðjónsson, sérfræðing í markaðsviðskiptum hjá Arion banka, í þætti sínum á Hringbraut; Viðskipti með Jóni G.

Það fór straumur um markaðinn á mánudag. Þetta voru gleðtíðindi fyrir ferðaþjónustuna. Bréf í Icelandair Group hækkuð mest þennan dag, eða um rúman fimmtung, og eins hækkuðu bréf í fasteignafélögunum þremur áberandi mikið. Bréf í sjávarútvegsfyrirtækjunum Iceland Seafood og Brim fengu sömuleiðis byr í seglin – enda líklegt að veitingahús erlendis, sem borga hæsta verðið fyrir sjávarafurðir, opni fyrr en gert hefur verið.

Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni fór í hæstu hæðir í lok mánudags og endaði í 2.760 stigum - og hefur haldist á því róli síðan.

Hér má sjá viðtal Jóns G. við Stefán Brodda Guðjónsson hjá Arion banka.