Manstu hvað þú fékkst í jóla­gjöf í fyrra? Fæstir virðast muna það

UNICEF á Ís­landi hefur birt skemmti­legt mynd­band þar sem nokkrir þjóð­þekktir Ís­lendingar eru spurðir hvað þeir fengu í jóla­gjöf í fyrra.

Það er skemmst frá því að segja að fæstir muna svo langt aftur í tímann, en meðal þeirra sem reyna að svara spurningunni eru Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála- og iðnaðar­ráð­herra, Guð­jón Guð­munds­son í­þrótta­frétta­maður, Sig­rún Ósk Kristjáns­dóttir dag­skrár­gerðar­kona og Ævar Þór Bene­dikts­son rit­höfundur.

Um er að ræða kynningar­mynd­band fyrir Sannar gjafir UNICEF en um er að ræða lífs­nauð­syn­leg hjálpar­gögn fyrir bág­stödd börn. Gjöfunum, sem hægt er að kaupa í vef­verslun UNICEF, er dreift til barna og fjöl­skyldna þeirra í sam­fé­lögum þar sem þörfin er mest.

Mynd­bandið má sjá hér að neðan og hér má kynna sér Sannar gjafir nánar.