Manna­nafna­nefnd sam­þykkir átta ný eigin­nöfn: „Eigin­nafnið Nieljohníus upp­fyllir skil­yrði“

Manna­nafna­nefnd sam­þykkti í dag átta ny eigin­nöfn í dag en þau eru Nieljohníus, Villi­blóm, Para­dís Diddi, Karna, Amari­e, Hil­dís, Þórunn­borg, Matt­heó, Ivan og Ýda.

Nefndin kvað upp úr­skurði sína 1. mars en þeir voru birtir á vef­síðu stjórnar­ráðs ný­lega.

Til þess að heimilt sé að sam­þykkja nýtt eigin­nafn þurfa öll skil­yrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um manna­nöfn að vera upp­fyllt. Skil­yrðin eru:

  1. Eigin­nafn skal geta tekið ís­lenska eignar­falls­endingu eða hafa unnið sér hefð í ís­lensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við ís­lenskt mál­kerfi.
  3. Það skal ritað í sam­ræmi við al­mennar ritreglur ís­lensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rit­hætti þess.
  4. Eigin­nafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafn­bera til ama.

„Eigin­nafnið Nieljohníus (kk.) upp­fyllir skil­yrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur ís­lenskri eignar­falls­endingu,“ segir í einum úr­skurði stofnunarinnar.

Ýda og Amari­e vou sam­þykkt eftir að hafa verið hafnað áður en Manna­nafna­nefnd hefur gefið út að til standi að slaka á kröfum.