Bein fundust á Skaga í Húnavatnssýslu í gær en talið er að um mannabein sé að ræða. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, segir að málið sé komið á borð kennslanefndar ríkislögreglustjóra.
Vísir greindi frá þessu.
Það var íbúi á svæðinu sem fann beinin, sem talið er að séu handleggsbein, eftir hádegi í gær. Ítarleg leit var gerð á svæðinu í kjölfarið og fannst ekkert fleira sem gæti tengst umræddum beinum. Stefán getur ekki sagt til um það hvort beinin séu gömul eða ekki, kennslanefnd muni skera úr um það.