Máni vill að Willum fái ráðherraembætti: Er með eitt ákveðið í huga

Nú virðist allt stefna í tilkynnt verði um áframhaldandi samstarf ríkisstjórnarflokkanna þriggja, Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks, í kringum næstu helgi. Alþingi verður sett í dag og á fimmtudag verður kosið um tillögur undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar. Þá kemur í ljóst hvort seinni talningin í Norðvesturkjördæmi taki gildi sitt eða ekki, sem hefur uppkosningu í för með sér í kjördæminu.

Samtal formanna ríkisstjórnarflokkanna hefur gengið vel og bersýnilegt að skýr vilji hefur verið hjá þeim öllum að halda samstarfinu áfram. Það hefur því í raun lítið annað komið til greina en að samstarfið haldi áfram. Vegna þessa hafa margir leikið sér við að stilla upp mögulegum ráðherrum í möguleg embætti.

Ekki er búist við neinum stórvægilegum mannabreytingum. Eitt sæti er laust í kjölfar þess að Kristján Þór Júlíusson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu, en reiknað er með að Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi, komi inn í stað hans – þó ekki endilega í embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Nokkuð hefur verið skrafað um það að framsóknarmaðurinn Willum Þór Þórsson fái ráðherraembætti, fari svo að einn stóll bætist við ríkisstjórnarborðið. Willum er vitaskuld fyrrverandi knattspyrnuþjálfari og kennari og því ekki útilokað að hann gæti hugsað sér að setjast í stól mennta- og menningarmálaráðherra.

Flokkssystir hans, Lilja Alfreðsdóttir, situr nú í því embætti en líklegt þykir að hún geti hugsað sér að söðla um.

Útvarps- og umboðsmaðurinn Máni Pétursson hefur sjaldan legið á skoðunum sínum og það er alveg skýrt í huga hans hvað hann vill. Hann segir þjóðina þurfa á því að halda að Willum taki við embætti mennta- og menningarmálaráðherra: