„Ef það er eitthvað sem bæjarfélög þurfa ekki eru það fleiri sundlaugar. Við verðum að fara nota skattpeninga almennings i eitthvað annað en svona þvælu.“ Þetta sagði Máni Pétursson fjölmiðlamaður og markþjálfi á Twitter. Máni er ekki þekktur fyrir að sitja á skoðunum sínum eins og margir muna eftir úr útvarpsþáttunum Harmageddon.
Vísar Máni í orð Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra og íbúa í Fossvoginum, sem hún lét falla á íbúafundi í Réttarholtsskóla í síðustu viku. Lilja vildi hætta við áform uppbyggingu við Bústaðaveg en þess í stað byggja nýja sundlaug í Fossvogsdalnum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði ráðherranum að slík laug væri á dagskrá, beðið væri eftir Kópavogi sem ætlar líka að koma að byggingunni.
Atli Fannar Bjarkason, samfélagsmiðlastjóri RÚV, sagði við Mána:
„Máni, við þurfum að tala saman. En fyrst ætla ég taka nokkrar vikur í að vinna lista yfir hluti sem má skera niður áður en við komum að sundlaugunum aka sérstöðu okkar í samfélagi þjóða.“
Máni svaraði um hæl:
„Þú ert sammála mér eftir það spjall þetta er forréttinda þvæla. … í alvöru þétting byggðar snýst ekki um sundlaugar. Ég vil frekar styrkja skóla búa til betra umhverfi fyrir rekstur og stytta biðlista en byggja enn eina fucking sundlaugina.“
Mána er djúpt niðri fyrir:
„Tilhvers eru þessar sundlaugar og fyrir hvern? Hvar getur þetta samfélag biðlistanna verið komið á þann stað að ræða sundlaugar eins og það skipti máli.“