„Mér finnst þetta bara sorpblaðamennska,“ sagði Máni Pétursson í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun þegar hann var spurður út í frétt Eiríks Jónssonar um meint ástarlíf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Málið vakti mikla athygli í gær, enginn annar miðill tók frétt Eiríks upp beint en DV fjallaði um að það væri liður í innanhúsdeilum í Sjálfstæðisflokknum þar sem verið væri að reyna að koma höggi á Áslaugu.
Ólöf Skaftadóttir, annar ritstjóra Innherja, tók undir með Mána.
„Mér finnst þetta einhverjar nýjar lendur í blaðamennsku. Ég hef bara aldrei séð svona áður. Kannski asnalegt að taka upp þetta spil en það hefur verið slúðrað um karlkyns ráðherra og það sem þeir eiga að hafa gert en það hefur aldrei verið skrifað um það, allavega ekki svo mig reki minni til.“
Máni svaraði: „Þetta er rétt hjá þér Ólöf. Ég veit ekki hvað manni á að finnast um þetta.“
Snærós Sindradóttir, þáttastjórnandi, sagði að vefur Eiríks Jónssonar sé langt frá því að teljast virðulegur miðill en svo hafi MBL fylgt í kjölfarið. „Þannig að virtari miðlar fylgja í kjölfarið með eitthvað sem þeir virðast hafa setið lengi á, geta virtir fjölmiðlar leyft sér að finna annan vinkil inn í eitthvað slúður.“
Máni sagði að fjölmiðlar væru orðnir veikir og væru farnir að haga sér eins og samfélagsmiðlar. Ólöf sagði að það gæti verið birtingarmynd djúpstæðari vanda.
„Mér finnst í þessu tilliti… Þetta er svo mikill botn. Ég veit ekki hvað ég á að segja,“ sagði Ólöf.
Máni sagði að það væri að einhverju leyti eðlilegt að fjölmiðlar fjölluðu um einkalíf stjórnmálamanna. „Það er alls staðar í heiminum sem það er svoleiðis. Ástæðan fyrir því að það hefur ekki verið svona hérna er smæð samfélagsins, það þekkja allir alla og viðbrögðin verða alltaf þannig. Það er eðlilegt að einhver blöð séu að gera það en að það séu helstu miðlar, það finnst mér mjög skrítið,“ sagði Máni.
Ólöf var sammála. „Ég vona að þetta sé ekki það sem koma skal.“