„Þó þessi orð hans afa míns séu að rúmlega 30 ára gömul eiga þau vel við í dag,“ segir útvarpsmaðurinn Þorkell Máni Pétursson á Facebook-síðu sinni.
Þar birtir hann úrklippu úr gömlu viðtali við afa hans, Björn Pálsson frá Löngumýri. Björn var þingmaður Austur-Húnvetninga í mörg herrans ár, eða frá 1959 til 1974, og sat hann á þingi fyrir Framsóknarflokkinn. Umrætt viðtal sem Máni vísar til birtist á forsíðu Vísis árið 1979 en fyrirsögn þess var: „Þá var enginn bjáni í þinginu“.
„Hann var bóndi eins og svo margir Framsóknarmenn. Þegar hann sat á þingi var þingmennska auka starf. Menn buðu sig fram því þeir raunverulega vildu hafa einhver áhrif á samfélagið og þeir voru í tengslum við samfélagið sitt,“ segir Máni í færslu sinni.
Hann bendir á að í dag séu aðrir tímar. „Í dag ætlar þingheimur að hækka skatta á veitingamenn. Starfsgrein sem hefur meira og minna þurft að hafa lokað hjá sér allt þetta ár. Í dag ætlar þingheimur að hækka afnotagjöld á RÚV, lækka framlögin til þeirra og láta frjálsa fjölmiðla fá einhverjar 400 millur. RÚV mun að sjálfsögðu ekki þurfa skera niður,“ segir Máni og bætir við að RÚV muni sækja þessa peninga af fullri hörku á auglýsingamarkaðinn.
„Í dag er þingheimur með landbúnaðarráðherra sem segir að það sé val að vera bóndi. Það sé lífsstíll. Hann er með tæpar 2 milljónir í mánaðarlaun og bílstjóra,“ segir Máni sem endar færsluna á þessum orðum:
„Í dag virðast aðallega vera bjánar á þingi.“
Þó þessi orð hans afa míns séu að rúmlega 30 ára gömul eiga þau vel við í dag. Hann var bóndi eins og svo margir...
Posted by Mani Pétursson on Miðvikudagur, 7. október 2020