Mál hlaðvarpsstjórnandans Joe Rogan hefur vakið heimsathygli, endaði það með því að tveir listamenn sögðu skilið við Spotify og Rogan sagðist ætla að taka sig á. Miklar umræður hafa skapast um tjáningarfrelsið í kjölfarið, meðal þeirra sem hefur skoðun á þessu er hlaðvarpsstjórnandinn Máni Pétursson úr Harmageddon.
Hann tekur fram að Rogan er ekki með bólusetningum og notkun Ivermectin.
„Er það í alvöru orðið þannig að maður sem er að útvarpa skoðunum sem eru ekki í takt við tíðarandann sé orðin orðsök þess að listamenn vilja ekki hafa efnið sitt á einhverri tónlistarveitu? og finnst fólki það bara í lagi?,“ spyr Máni.
„Ég myndi skilja þetta ef þessir listamenn væru að koma í veg fyrir hatursorðræðu en að vera gegn bólusetningum er ekki hatursorðræða.“
Hann skilur ekkert í listamönnunum:
„Þessir listamenn eru búnir að vera á þessari tónlistaveitu í fleiri ár ásamt tónlistarmönnum sem eru dæmdir kynferðisglæpamenn, barnaníðingar, nasistar og morðingjar. Þeim ofbauð það aldrei en þegar einhver vöðvastæltur gaur fór að tala gegn bólusetningum þá var þeim ofboðið?“
Rogan sé þó ekki saklaus:
„Mistök Joe Rogan eru klárlega að bjóða ekki uppá ólík sjónarmið í umræðunni. En hann er svo sem ekkert einn um að gera slík mistök. Ríkisstjórnarsjónvarpið gerir þau mistök í hverri viku.“