Útvarpsmaðurinn Þorkell Máni Pétursson gefur lítið fyrir stórtækar hugmyndir yfirvalda um að reisa nýja 15 milljarða króna þjóðarhöll í Laugardal.
Hugmyndirnar voru kynntar á blaðamannafundi í morgun en framkvæmdir eiga að hefjast strax á næsta ári. Standa vonir til að framkvæmdum við höllina ljúki í árslok 2025.
Höllin verður sú glæsilegasta ef áætlanir ganga eftir og mun hún taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á tónleikum. Tilhlökkun ríkir hjá mörgum enda mun aðstaða og umgjörð í kringum fjölmargar íþróttagreinar stórbatna. Ekki eru þó allir sáttir og er Máni í þeim hópi.
„Það má gera ráð fyrir að fjölmiðlar klappi upp nýja þjóðarhöll. Engin mun spyrja hina nauðsynlegu spurninga “er ykkur alvara með þetta” og á hvaða fíkniefnum eruð þið?“
Það má gera ráð fyrir að fjölmiðlar klappi upp nýja þjóðarhöll. Engin mun spyrja hina nauðsynlegu spurninga “er ykkur alvara með þetta” og á hvaða fíkniefnum eruð þið?
— Máni Pétursson (@Manipeturs) January 16, 2023