Máni furðar sig á því að 11 konur en bara 2 karlar séu í starfs­hópi um kyn­fræðslu

„Getum við átt vits­muna­legar um­ræður um það af hverju það eru 11 konur og 2 karlar i starfs­hóp um kyn­fræðslu?“

Þessari spurningu varpaði Þor­kell Máni Péturs­son út­varps­maður fram á Twitter-síðu sinni í gær.

Máni vísaði þar í fréttir um skipun starfs­hóps sem hafa það hlut­verk að efla kyn­fræðslu í grunn- og fram­halds­skólum.

Sól­borg Guð­brands­dóttir, fyrir­lesari og stofnandi Insta­gram-síðunnar Fá­vitar, leiðir hópinn sem mun skila skýrslu og að­gerðar­til­lögum fyrir lok febrúar­mánaðar næst­komandi. Mun starfs­hópurinn meðal annars gera til­lögur um hvernig sé best að miðla fræðslu um kyn­líf og kyn­heil­brigði.

Í Twitter-þræðinum segist Sól­borg sjálf ekki hafa komið að skipun hópsins, en þær stofnanir sem beðnar voru um að til­nefna í hópinn séu að miklu leyti kvenna­stéttir, til dæmis kennarar, hjúkrunar­fræðingar og kyn­fræðingar.

„Karl­menn taka síður þátt í jafn­réttis­bar­áttunni og það er ekki vegna þess að þeir eru ekki vel­komnir með,“ segir hún.

Máni er þeirrar skoðunar að opna hefði átt nefndina fyrir fleirum. „Ég held að karl­menn þurfi ef eitt­hvað er meiri kyn­fræðslu en konur. Typpi valda meiri skaða í þessu sam­fé­lagi en sköp.“ Sól­borg kveðst taka undir það og segist vera opin fyrir því að funda með „á­huga­sömum typpa­eig­endum“ sem hafa eitt­hvað til málanna að leggja.

Í til­kynningu sem stjórnar­ráðið sendi frá sér vegna hópsins á þriðju­dag kemur fram að konur séu í meiri­hluta af ein­faldri á­stæðu. Í­trekaðar til­raunir hafi verið gerðar til að jafna kynja­halla en án árangurs. Máni virðist ekki kaupa þessa skýringu.

„Já, þetta er ekki trú­verðugt. Eru sem sagt allir karlar van­hæfir eða á­huga­lausir nema þessir tveir.“

Um­ræðuna má sjá í Twitter-þræðinum hér að neðan: