Máni ekki sáttur: „Við sem höfum ein­hverja sóma­kennd getum ekki einu sinni sagt þessu upp“

Heims­meistara­mótið í knatt­spyrnu var flautað í gang í gær þegar heima­menn í Katar töpuðu 2-0 fyrir spræku liði Ekvador í fyrsta leik mótsins.

Sú á­kvörðun að halda mótið í Katar hefur verið um­deild í meira lagi en mann­réttinda­mál þykja fótum troðum í ríkinu og þá létust margir verka­menn við að byggja þá velli sem spilað er á. Allir leikir mótsins verða í beinni út­sendingu á RÚV og hefur þó nokkur gagn­rýni beinst að ríkis­fjöl­miðlinum vegna þess.

Þor­kell Gunnar Sigur­björns­son, í­þrótta­frétta­maður á RÚV, steig fram á Twitter í gær og svaraði þar fyrir þá gagn­rýni sem RÚV hefur fengið. Benti hann á að á­kveðins tví­skinnungs gætti í um­ræðunni.

„Auð­vitað gagn­rýnum við mann­réttinda­brot og spillingu tengdu HM í Katar, sem hefði aldrei átt að fara fram þar. En hvar var samt þessi gagn­rýni á Rúss­land fyrir HM 2018? Rússar höfðu þá inn­limað Krím­skaga með her­valdi. Þar er hin­segin fólk fangelsað og ras­ismi við­gengst á völlunum.“

Þor­kell Gunnar bætti svo sjálfur við að vissu­lega hefði ein­hver gagn­rýni komið fram þegar mótið var haldið í Rúss­landi. „En þar hótaði fólk ekki í stórum stíl að snið­ganga og þar fram eftir götunum. Of gaman því Ís­land var með? Kannski hefur sið­ferðis­vitund fólks bara batnað síðan þá. Skal ekki segja.“

Út­varps­maðurinn Þor­kell Máni Péturs­son blandaði sér í um­ræðuna en hann er þekktur fyrir flest annað en að liggja á skoðunum sínum.

„Þetta er á öðrum skala. Alveg sorg­legt að ríki­stjórnar­sjón­varpið sé að reyna að hagnast á þessu. Við sem höfum ein­hverja sóma­kennd getum ekki einu sinni sagt þessu upp.“

Þor­kell Gunnar svaraði að bragði að honum dytti ekki í hug að mót­mæla því að þetta væri á öðrum skala.

„Hef hvergi varið þá á­kvörðun að HM sé í Katar. Hvað RÚV á aug­lýsinga­markaði varðar veistu vel að það eru um­ræður sem þú þarft að taka við þing­menn sem setja ís­lensk lög, en ekki við mig al­mennan starfs­mann hjá RÚV.“