Þorkell Máni Pétursson, Garðbæingur og útvarpsmaður á X-inu, er ófeiminn við að viðra sínar pólitísku skoðanir.
Í Facebook-hópi íbúa Garðabæjar hafa skapast umræður um nýtt knatthús sem verið er að rísa í Vetrarmýri í Garðabæ, en þeir sem ekið hafa Reykjanesbrautina hafa ef til vill tekið eftir því að miklar framkvæmdir hafa verið á svæðinu að undanförnu.
Margir Garðbæingar segjast gleðjast yfir því að fylgjast með knatthúsinu rísa og um sé að ræða mikið framfaramál fyrir bæinn. Máni virðist annarrar skoðunar en í athugasemd segir hann, í kaldhæðni:
„Bragginn verður glæsilegasta knatthús landsins. Enda kostar það ca 5 milljarða. Eða 250 þús kall á hvern íbúa. Geggjaður díll.“
Framkvæmdir við húsið lágu niðri um tíma þar sem mýrin á framkvæmdasvæðinu reyndist dýpri en talið var. Upphaflega gerðu áætlanir ráð fyrir að kostnaðurinn við framkvæmdina yrði 4,5 milljarðar króna en Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans sem er í minnihluta bæjarstjórnar, sagði við RÚV í fyrrasumar að viðbúið væri að kostnaðurinn myndi aukast.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í meirihluta í sveitarstjórn Garðabæjar í áratugi en Máni er lítill stuðningsmaður flokksins eins og kom glögglega fram í viðtali við hann í Einkalífinu á Vísi í október síðastliðnum.
„Það er alveg vitað og hefur verið vitað lengi að ég mun fara gegn Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ einn góðan veðurdag. Ég myndi telja það mjög líklegt að ég geri það eftir þessa átján mánuði. Sjálfstæðismenn í Garðabæ vita alveg að ég ætla skipta þeim út og þeir vita að ég mun skipta þeim út. Þó það haldi allir að Garðabær sé svo blár, jú við erum með blátt lið en það er skynsamt fólk í Garðabæ. Ef þú getur unnið Garðabæinn, þá getur þú unnið allt.“