„728.000.000 er sú upphæð sem allir stjórnmálaflokkar á Þingi samþykktu handa sjálfum sér á næsta ári. Hugsið aðeins um þetta,” segir útvarpsmaðurinn Þorkell Máni Pétursson á Twitter.
Kjarninn greindi frá því í gær að stjórnmálaflokkarnir átta fái 728 milljóna króna framlag úr ríkissjóði á næsta ári. Um er að ræða sömu upphæð og áætlað er að flokkarnir fái í ár og það þrátt fyrir versnandi stöðu ríkissjóðs vegna afleiðinga COVID-19-faraldursins.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, svaraði Mána á Twitter og bað hann um að koma með hugmyndir um hvernig hægt er að fjármagna stjórnmálaflokka með öðrum hætti – án þess að fyrirtæki kaupi þá, moldríkir einstaklingar kaupi þá eða að ríkið fjármagni þá. Máni gaf lítið fyrir athugasemd Helga og sagði.
„Byrjar þessi þvæla. 1. Þið gætuð byrjað á að samþykkja ákvæði nýrrar stjórnarskrá um aukið lýðræði. 2. Þið gætuð unnið vinnuna ykkar og rukkað félagsgjöld. 3. Fátækt fólk fær ekki aðild að stjórnmálaflokkum í dag. Stjórnmálamenn fyrirlíta fátækt fólk og þá sérstaklega konur,“ sagði Máni sem klykkti út með þessum orðum:
„Þingmenn í dag eru ekki í neinum tengslum við raunveruleikann og það er meðal annars vegna þessa ríkisstyrkja. Þið talið ekki við grasrótina.“
Í frétt Kjarnans kom fram að sex stjórnmálaflokkar hafi samþykkt tillögu um að hækka framlögin til stjórnmálaflokka eftir síðustu kosningar. Einu flokkarnir sem lögðu nafn sitt ekki við tillöguna voru Píratar og Flokkur fólksins.
728.000.000 er sú upphæð sem allir stjórnmálaflokkar á Þingi Samþykktu handa sjálfum sér á næsta ári. Hugsið aðeins um þetta.
— Máni Pétursson (@Manipeturs) November 2, 2020