Malín Agla er einkaþjálfari: Svona er best að brenna fitunni

Malín Agla Kristjánsdóttir nýtur töluverðra vinsælda sem einkaþjálfari og segir það eftirsóknarvert að eiga sterkan líkama. Malín, sem er 27 ára, er í athyglisverðu viðtali í Fréttablaðinu í dag þar sem hún ræðir meðal annars um starf sitt sem einkaþjálfari og gefur fólki góð ráð.

Að mati Malínar Öglu er ekkert eitt betra en annað þegar kemur að líkamsrækt.

„Þegar kemur að styrk og fitutapi finnst mér lyftingar skila mestum árangri. Mér finnst algjör óþarfi að eyða 45 mínútum á hlaupabretti eða hjóli þegar maður getur lyft lóðum og brennt fitu í leiðinni. Ég mæli frekar með interval-æfingum á brettinu, það er að taka hlaupa- og hjólaspretti. Hins vegar er besta líkamsræktin fyrir mig ekki endilega sú besta fyrir næsta mann. Ég hvet því fólk eindregið til að prófa alls konar þar til það finnur það sem það hefur mest gaman af,“ segir hún meðal annars í viðtalinu.

Þá kveðst hún ekki mæla með einhverju sérstöku mataræði, til dæmis ketó eða lágkolvetnafæði, til að ná skjótum árangri.

„Ef ég á að vera alveg hreinskilin, þá nei. Ég trúi á raunhæft jafnvægi. Ef maður borðar í hófi er ekkert vont fyrir mann. Mér finnst aldrei ganga til lengdar að vera á sérstöku mataræði, fólk fær fljótt leið á því og er þá skjótt dottið í gamla farið því fólki finnst það ekki standa sig eða nennir ekki að borða hrísgrjón, kjúkling og hafra í öll mál, alla daga. Sjálf nota ég 80/20-regluna; borða sömu máltíðirnar 80 prósent af tímanum en er svo líka mennsk og fer út að borða eða í bíó og fær mér nammipoka eða ís,“ segir Malín Agla meðal annars.

Viðtalið við hana í heild sinni hér.