Magnús varpaði sprengju: „Hot take. Meg­han Mark­le er vælu­skjóða“

Ó­hætt er að segja að Magnús Ragnars­son, fram­kvæmda­stjóri af­þreyingar sölu hjá Símanum, hafi varpað sprengju inn í net­heima á Twitter í gær­kvöldi. Þar tjáði hann sig um her­toga­ynjuna Meg­han Mark­le og eru fæstir honum sam­mála.

„Hot take. Meg­han Mark­le er vælu­skjóða,“ skrifar Magnús ein­fald­lega. Kol­brún Birna, lög­fræði­nemi, svarar Magnúsi um hæl og fær tölu­vert fleiri við­brögð en Magnús og fleiri að því er virðist sam­mála henni.

Eins og flestir vita var Meg­han Mark­le í heims­frægu sjón­varps­við­tali við Opruh Win­frey á dögunum þar sem hún lýsti kyn­þátta­for­dómum innan konungs­fjölsklydunnar og eigin sjálfs­vígs­hugsunum.

„Myndiru kalla full­orðinn karl­mann sem mætti í við­tal að tala um van­virðandi fram­komu og ras­isma af hálfu konungs­fjöl­skyldunnar, sem leiddi m.a. til sjálfs­vígs­hugsana, vælu­skjóðu?“ spyr Kol­brún Magnús ein­fald­lega, sem er hvergi banginn: „Já, ef ég tryði honum ekki.“

Fleiri svara Magnúsi og þykir ekki mikið til koma. „Lé­legt take er ekki hot take. Ég er viss um að fólk mun treysta þér svaka­lega fyrir van­líðan sinni í fram­tíðinni. Ertu með dóma­tól þar sem fólk þarf að færa rök fyrir því að líða illa?“ spyr sTuð­gerður Maria Magnús ein­fald­lega.

„Ró­legur Pi­ers Morgan,“ svarar Hans Orri Magnúsi ein­fald­lega, sem svarar: „Team Pi­ers alla leið!“ Sól­borg Guð­brands­dóttir, for­sprakki sam­fé­lags­miðla­verk­efnisins Fá­vitar, deilir færslu Magnúsar og finnst ekki til mikið koma.

„Þetta kalla­kallas­hit-sam­fé­lag, þar sem allir þurfa að vera rosa harðir á því og loka á til­finningar sínar, má vin­sam­legast deyja út.“

Elín Inga tekur í svipaðan streng: „Pæla samt í því að finnast bara það mikil stemning að stuða að á­kveða að kalla mann­eskju sem var að greina frá því að hafa upp­lifað sjálfs­vígs­hugsanir og ras­isma vælu­skjóðu. Er manni bara al­mennt drullu­sama um hve trig­gerandi maður er? Er manni bara al­mennt drullu­sama um allt?“