Magnús var 9 ára þegar hann kynntist Gísla: „Einstaklega hlýr maður“

Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri minnist Gísla Alfreðssonar, leikara og fyrrverandi þjóðleikhússtjóra, með hlýjum orðum í Morgunblaðinu í dag. Gísli lést 28. júlí síðastliðinn, 88 ára að aldri, en hann var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag.

Leiklistin átti hug og hjarta Gísla frá barnsaldri og lék hann í fjölda útvarpsleikrita á bernsku- og unglingsárum sínum. Hann lagði síðar stund á nám í leiklist, meðal annars í Þýskalandi, og var ráðinn fyrst til Þjóðleikhússins árið 1962. Hann var þjóðleikhússtjóri á árunum 1983 til 1991 og skólastjóri Leiklistarskóla Íslands frá árinu 1992.

Í minningarorðum sínum segir Magnús að Gísli hafi verið leikhúsmaður af lífi og sál og hann eigi mikilvægan sess í sögu Þjóðleikhússins.

„Íslenskt leikhúsfólk minnist Gísla með miklum hlýhug. Hann var vandaður, nákvæmur en fyrst og fremst einstaklega hlýr maður,“ segir Magnús sem rifjar upp fyrstu kynni hans af Gísla.

„Mín fyrsta minning um Gísla er frá því ég lék í Þjóðleikhúsinu níu ára gamall og leikhússtjórinn kom reglulega og sýndi okkur börnunum í sýningunni áhuga, hrósaði okkur og hvatti. Sömu hlýju fann ég þegar hann heilsaði upp á mig í leikhúsinu fljótlega eftir að ég hafði tekið við starfi þjóðleikhússtjóra fjórum áratugum eftir að hann var í sömu sporum. Gísli hafði áhuga á fólki, hvatti það áfram og lagði sig fram um að skapa góðan anda í leikhúsinu sem hann leiddi,“ segir Magnús.

Hann bætir við að margt leikhúsfólk minnist þess að Gísli hafi alltaf verið fyrstur til að fagna afmælisdögum samstarfsmanna og nemenda. Hélt hann skipulega skrá yfir þá afmælisdaga í tölvunni sinni, löngu áður en Facebook fór að sjá um þá hluti fyrir fólk.

„Við í Þjóðleikhúsinu sendum fjölskyldu Gísla innilegar samúðarkveðjur um leið og við erum full þakklætis fyrir ómetanlegt starf Gísla í þágu íslenskrar leiklistar. Blessuð sé minning Gísla Alfreðssonar.“