Magnús Gottfreðsson, prófessor og yfirlæknir á Landspítala, segir að líf okkar verði aldrei eins og það var áður en kórónuveirufaraldurinn fór að láta á sér kræla. Magnús var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun og fjallaði vefur Vísis um viðtalið við hann.
„Þessi hugmynd um að allt í einu sé árið 2018 og kórónuveiran er eitthvað sem enginn hefur talað um og við fljúgum hringinn í kringum hnöttinn áhyggjulaus, sá tími er ekkert að koma aftur,“ sagði Magnús en tók þó fram að mannkynið hefði lært að bregðast við með skynsamlegum hætti.
Hér væri til dæmis hægt að halda fjöldasamkomur með hraðprófum og lífið gangi að mörgu leyti sinn vanagang. Hann segir að veiran sé aftur á móti það snjöll að bóluefnin ein og sér leysi allan vandann.
„Við þurfum bara að halda áfram að elta og reyna að ná einhvers konar jafnvægi í skylmingunum við þessa veiru,“ sagði hann og bætti við að sagan kenndi okkur að almennt séð hefði okkur ekki gengið vel að þurrka út sjúkdóma. Eina dæmið um það sé bólusótt en veiran verði áfram með okkur.
„Þessi veira mun áfram vera með okkur, hins vegar mun tíminn leiða í ljós hvernig hún þróast með tímanum,“ segir Magnús.