Magnús sár út í RÚV eftir umfjöllun í gær: „Elska að keppa við þessa tudda“

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Símanum, er sár út í RÚV vegna umfjöllunar í Speglinum í gærkvöldi um viðtal Opruh Winfrey við Meghan Markle og Harry Bretaprins.

Magnús bendir á það á Twitter-síðu sinni á sex mínútna umfjöllun um viðtalið hafi verið í Speglinum í kvöldfréttatíma RÚV klukkan 18 í gærkvöldi. Að sögn Magnúsar var tekið fram að viðtalið yrði sýnt á ITV-sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi en látið vera að minnast á að það yrði sýnt í Sjónvarpi Símans klukkan 20 í gærkvöldi.

„Elska að keppa við þessa tudda,“ segir Magnús.

Guðmundur Jóhannsson, upplýsingafulltrúi Símans, bendir aftur á móti á að skilmerkilega hafi verið sagt frá því á föstudaginn í löngu innslagi á Rás 2.

„True. Breytir ekki því að það er furðulegt take að upplýsa þjóðina í fréttatíma bara um sýningu á ITV í kvöld. Það eru engar tilviljanir í Efstaleiti enda skárra væri það,“ svarar Magnús.

Ekki taka allir undir þessar umkvartanir Magnúsar og í þeim hópi er dagskrárgerðarfólk á RÚV. Þorsteinn Hreggviðsson, Þossi á Rás 2, segir til dæmis: „Þetta kom líka fram í Fréttum áðan, þið vonandi auglýsið kertafleytinguna fyrir vesalings fólkið sem stendur í þessu óréttlæti vonandi vel, þannig að maður geti sýnt samhug í verki.“

Þórhildur Ólafsdóttir segir að þetta hafi einnig komið fram í Síðdegisútvarpinu á Rás 2. „Þetta hefur í raun komið fram svo víða á miðlum RÚV að síminn ætti að senda ávaxtakörfu sem þakklætisvott upp í Efstaleiti.“