Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu Alþingiskosningar, vandar Inga Tryggvasyni, formanni yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis, ekki kveðjurnar á Facebook síðu sinni í dag.
Tilefnið er svarbréf Inga við þeim kærum sem bárust vegna Alþingiskosninganna í síðasta mánuði. Svarbréfið er sýnilegt á vef Alþingis. Þar gefur Ingi ekki tommu eftir og svarar hverri einustu kæru fullum hálsi.
„Mannleg mistök“
Magnús tekur upp hanskann fyrir samflokkskonu sína Lenyu Rún Taha Karim, en hún féll af þingi í kjölfar seinni talningarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hún var ein af þeim sem kærðu kosningarnar og ætlar Ingi aldeilis ekki að láta hana vaða yfir sig.
Í svarinu sínu til Lenyu segir Ingi meðal annars: „Það vekur furðu að kærandi vilji byggja niðurstöður úr kosningu til Alþingis á rangri talningu sem varð til fyrir mannleg mistök“ og: „Aðdróttanir um að oddviti hafi spillt kjörgögnum er harðlega mótmælt enda engin rök færð fyrir þeirri fullyrðingu. Raunar er um rangar sakargiftir að ræða sem eru refsiverðar.“
Við þessu ofbýður Magnúsi og segir „Að formaður yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis saki frambjóðanda Pírata, Lenyu Rún, um rangar sakargiftir er algjörlega fráleitt og ómaklegt.“
Og hann heldur áfram: „Lenya Rún gerði ekki annað en að benda á þá staðreynd í sinni kæru að formaðurinn var einn með óinnsigluðum kjörgögnum í töluverðan tíma áður en aðrir kjörstjórnarmeðlimir mættu á staðinn vegna fyrirhugaðrar endurtalningar.“
„Ætti að leiða til ógildingar kosninganna“
Magnúsi finnast vinnubrögð talningarinnar grunsamleg: „Í bunka sem telur 50 atkvæði, sem þá er strax dreginn upp úr kassa með atkvæðum Viðreisnar, finnst stærsta skekkja fyrri talningarinnar, þ.e. heil 9 atkvæði sem tilheyrðu öðrum framboðum. Eru það rangar sakargiftir að benda á atriði sem fyrir liggur og fram kemur í gögnum máls og er í eðli sínu grunsamlegt?“ segir Magnús.
Magnús vill láta ógilda kosningnarnar: „Kjarni málsins er sá að alvarlegir ágallar eru til staðar sem leiða til ógildingar kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Niðurstöður breyttust á milli talninga sem leiddu til breyttrar samsetningar þingsins og ekki er lengur hægt að sannreyna hvor talningin er rétt vegna brota kjörstjórnar á kosningalögum.“
Hann heldur áfram: „Hefðu vörslur kjörgagna verið fullnægjandi mætti sannreyna hvor talningin hafi verið rétt en sá ómöguleiki er bein afleiðing af broti kjörstjórnar að hafa ekki farið að lögum varðandi varðveislu kjörgagna. Þetta atriði eitt og sér ætti að leiða til ógildingar kosninganna,“ segir Magnús.
Hann segir að lögfræðimenntaðir Alþingismenn hljóti að átta sig á stöðu mála: „Við þetta bætist að lögreglan á Vesturlandi telur að kjörstjórnarmeðlimir hafi gerst sekir um refsiverða háttsemi og hefur gert umræddum aðilum að greiða sekt. Verði sektirnar ekki greiddar má búast við útáfu ákæru og rekstur sakamáls. Það er ekki eftir neinu að bíða. Ógilding kosninganna blasir við. Þingmenn sem hafa setið lengi á Alþingi og eins þeir þingmenn sem eru með lögfræðimenntun átta sig á þessu,“ segir Magnús.
Hann lokar pistlinum með slagorði Pírata fyrir síðustu Alþingiskosningar: „Lýðræði ekkert kjaftæði.“
„Er saknæmt að benda á mistök?“
Umrædd Lenya Rún blandar sér í umræðuna á Twitter síðu sinni. Ingi Tryggvason spurði stuttu eftir kosningar hvort saknæmt væri að gera mistök. Hann vildi meina að mistök við talningu atkvæðanna hefðu ekki verið saknæm, heldur einungis mannleg mistök, eins og fram kom hér að ofan.
Lenya grípur þetta á lofti eftir vendingar dagsins í dag og síðustu daga og segir: „Nú spyr ég líkt og formaður yfirkjörstjórnar: er saknæmt að benda á mistök?“
Nú spyr ég líkt og formaður yfirkjörstjórnar: er saknæmt að benda á mistök? 🤡 pic.twitter.com/VX1O3ONUEl
— Lenya Rún (@Lenyarun) October 21, 2021