Magnús og Ellý þurfa að borga hálfa milljón fyrir herbergi á hjúkrunarheimili

Það er ekki íslensku samfélagi sæmandi að rukka fólk um mörg hundruð þúsund krónur á mánuði fyrir heilbrigðisþjónustu. Þetta sagði Magnús Karl Magnússon læknir í áhugaverðu viðtali í Kastljósi í gærkvöldi.

Magnús Karl og eiginkona hans, Ellý Katrín Guðmundsdóttir, þurfa að greiða tæplega hálfa milljón króna á mánuði fyrir herbergi á hjúkrunarheimili.

Ellý hefur glímt við alzheimer-sjúkdóminn undanfarin ár en hún var óvenjuung þegar hún greindist, eða um fimmtugt. Bæði hafa þau rætt opinskátt um sjúkdóminn og stigu þau meðal annars fram í viðtali í Íslandi í dag í fyrra.

Í Kastljósi í gærkvöldi sagði Magnús að eftir að eiginkona hans þurfti að flytja á hjúkrunarheimili hafi komið í ljós að kostnaðurinn væri 470 þúsund á mánuði. Það ætti öllum að vera ljóst að herbergi með fæði á 470 þúsund krónur á mánuði er ekki eðlilegur kostnaður.

Í hádegisfréttum RÚV í dag var rætt við Sigurjón Norberg Kjærnested, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, sem sagði að hjúkrunarheimilin sem slík hefðu ekkert um það að segja hversu mikið viðkomandi borgar fyrir þjónustuna. Allir íbúar sem eru með tekjur yfir 118 þúsund krónur á mánuði taki þátt í kostnaði við dvölina og hún sé tekjutengd og geti að hámarki orðið 525 þúsund krónur á mánuði.

„Í rauninni er það pólitísk spurning hvernig eigi að fjármagna kostnað ríkisins. Hjúkrunarheimilin fá í rauninni bara sendan lista yfir hversu mikið eigi að innheimta frá hverjum heimilismanni á hjúkrunarheimilunum og standa svo í þeirri innheimtu og okkar sjónarmið hefur verið að það væri best að ríki sæi um þetta sjálft vegna þess að á endanum eru greiðslur til hjúkrunarheimila ákveðnar með samningum við ríkið,“ sagði hann og bætti við að hver dagur á hjúkrunar- og dvalarheimili kosti um 40 þúsund krónur.