Magnús og Björgvin verða oddvitar ásamt Guðmundi og Glúmi

Uppstillingarnefnd Frjálslynda lýðræðisflokksins hefur skipað tvo nýja oddvita fyrir komandi kosningar. Annars vegar er um að ræða Magnús Guðbergsson, öryrkja í Suðurkjördæmi og Björgvin Egil Vídalín Arngrímsson, eftirlaunaþega í Norðausturkjördæmi.

Fyrir voru þeir Guðmundur Franklín Jónsson, hagfræðingur, oddviti í Reykjavík norður og Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur, oddviti í Reykjavík suður.

Oddvitar Norðvesturkjördæmis og Suðvesturkjördæmis verða kynntir um helgina, að því er segir í tilkynningu frá flokknum.

Magnús er fæddur 1969 og er kvæntur Unni Íris Hlöðversdóttur. Unnur og Magnús eiga 6 börn, þau: Emilíu, Sigrúnu, Stefán, Katrínu, Jón, og Kristinn. Þau búa í Reykjanesbæ. Magnús ólst upp í Smáratúni á Vatnsleysuströnd með foreldrum sínum þeim Guðbergi Sigursteinssyni frá Austurkoti og Katrínu S. Ágústsdóttur frá Halakoti hvorutveggja á Vatnsleysuströnd, þau eru látin. Magnús er öryrki eftir 2 alvarleg bílslys.

Magnús er með skipstjórnarréttindi og vélstjóraréttindi og hefur meðal annars unnið við trilluútgerð, verslun, byggingariðnað, ferðaþjónustu, skipasmíðar sem og almenna smíðavinnu og margt fleira.

Björgvin er fæddur í Skerjafirði 1947 og eru foreldrar hans þau Arngrímur Vídalín Guðjónsson, frá Ytri Hjarðardal við Önundarfjörð og Rannveig G. Jónasdóttir, fædd á Ísafirði.

Björgvin er með próf í atvinnuköfun, 30 tonna skipstjórnarréttindi, loftskeytamaður og rafeindavirki. Þá hefur hann starfað sem aðstoðarmaður fiskifræðinga hjá Hafrannsóknarstofnun, loftskeytamaður hjá BÚR, ÚA, Eimskip og Reykjavík Radio TFA. Síðustu ár hefur hann starfað hjá Örtölvutækni Tölvukaupa og Opnum Kerfum sem UPS sérfræðingur.