Magnús Geir: Leitt ef klapp eftir leik­sýningar yrði bannað – „Þetta er vinnan þeirra“

Magnús Geir Þórðar­son, leik­hús­stjóri Þjóð­leik­hússins segist ekki kannast við um­ræðu um að leik­hús­fólki leiðist klapp eftir leik­sýningar og segir það vera leitt ef klapp yrði bannað eftir sýningar.

Elísa­bet Welding Sigurðar­dóttir vakti at­hygli á málinu á Twitter. „ Leik­hús­fólk hefur rætt þennan sið hjá á­horf­endum að klappa í lok sýningar og vilja mörg hver að þetta verði af­lagt. Þetta er vinnan þeirra. Ef þú klappar fyrir kassa­starfs­manni, lög­fr. og hjúkrunar­fr. þá er rétt­lætan­legt að klappa eftir leik­sýningu. Þetta er pæling.“

Þjóð­leik­hús­stjóri segir leikurum þyki lík­legast vænt um klappið, eins og á­horf­endum. „Þetta er auð­vitað sam­spil á milli á­horf­enda og leikara en ég held að þetta sé fyrst og fremst þakk­læti eftir sýningu,“ segir Magnús.

Tístið hefur fengið mikla at­hygli og fólk hefur brugðist við tístinu á ýmsan hátt.

Þing­maðurinn Björn Leví Gunnars­son bendir á að eitt sinn hafi verið klappað eftir lendingu í flug­vél.

„Er þá ekki vanda­málið frekar að við klöppum ekki nóg? Klöppum meira fyrir fleirum,“ segir einn í svari við tístinu.

Magnús segir alveg mega klappa fyrir öðrum starfs­stéttum, eins og strætó­bíl­stjóra eða kassa­starfs­manni. „En ég held þetta sé bara eins og þegar við þökkum fyrir okkur víða, fyrir þjónustu eða svo­leiðis. Það væri leitt ef við myndum banna þetta,“ segir hann.