„Þetta væru hin fullkomnu áramót til að hætta flugeldaruglinu,“ segir Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Símanum, á Twitter-síðu sinni.
Nú er sá tími árs runninn upp að fram koma fjörugar umræður um flugelda, kosti þeirra og galla, enda nálgast áramótin óðfluga. Til stendur að taka í gildi nýja reglugerð um sölu flugelda sem myndi stytta sölutíma þeirra verulega. Sú reglugerð tekur þó ekki gildi strax.
Sjá einnig:Þrengt að skotglöðum Íslendingum: Flugeldar verði bara seldir í þrjá daga
Sitt sýnist hverjum um flugelda en helstu rökin gegn þeim er sú gríðarlega loftmengun sem fylgir þeim, svo ekki sé minnst á eldhættu og slysahættu ef ekki er farið varlega.
Magnúsi er bent á að björgunarsveitirnar fjármagni sig að verulegu leyti með sölu flugelda, en hann bendir sjálfur á að fjármögnun björgunarsveitanna megi ekki vera háð „slysavaldandi ofsamengun“ eins og hann orðar það.
„Ekki frekar en að fjármögnun Rauða krossins á að vera háð viðbjóðsrekstri spilakassa,“ bætir hann við og tekur fram að hann sé grimmur stuðningsaðili björgunarsveitanna. Hann kveðst ekki í nokkrum vafa um að björgunarsveitarmenn finni nýja leiðir til fjármögnunar með aðstoð allra.
Elín Björg Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, leggur orð í belg á Twitter-síðu sinni og minnir fólk á að það þurfi ekki að kaupa flugelda. „Þið getið alveg styrkt björgunarsveitirnar án þess að fara fram á eitthvað(mengandi flugelda) í staðinn. Þannig virka góðverk líka best.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kynnti drög að reglugerðarbreytingu um sölu skotelda í október síðastliðnum. Gerir nýja breytingin ráð fyrir að sala flugelda verði aðeins heimiluð þrjá daga í kringum áramótin, 30. desember, 31. desember og 6. janúar. Eins og staðan er í dag er heimilt að selja flugelda á tímabilinu 28. desember til 6. janúar að báðum dögum meðtöldum. Nýja reglugerðin kveður einnig á um að aðeins verði heimilt að nota skotelda í 2. og 3. flokki, tertur og rakettur til dæmis, frá klukkan 16 á gamlársdag til klukkan 02:00 aðfaranótt 1. janúar og frá klukkan 16 til klukkan 22 á þrettándanum, 6. janúar.
RÚV greindi frá því í gær að vegna COVID-19-faraldursins hafi ekki þótt æskilegt að fækka söludögum flugelda og því hefur útgáfu reglugerðarinnar verið frestað.
Meðal þeirra sem talað hafa hvað harðast gegn flugeldum má nefna Sævar Helga Bragason, stjörnufræðikennara og fjölmiðlamann, sem lagði til fyrir nokkrum árum að almenn notkun flugelda yrði bönnuð vegna reyk- og rykmengunar, sóðaskapar og hávaðamengunar.
„Ég held að þegar maður hugsar þetta blákalt og horfir á rökin með og á móti þessu þá eru bara miklu fleiri rök á móti þessu jafnvel þó að okkur finnist þetta fallegt og skemmtilegt. Stundum verðum við bara að bíta í það súra og jafnvel þó að hlutir geti verið skemmtilegir þá geta þeir líka verið mjög skaðlegir og þá held ég að við ættum að hlusta á þau rök sem eru veigameiri,“ sagði Sævar í viðtali við Vísi árið 2017.
Þetta væru hin fullkomnu áramót til að hætta flugeldaruglinu.
— Magnus Ragnarsson (@MagnusRagnars) December 27, 2020
Árleg áminning. Þið *þurfið* ekki að kaupa flugelda. Þið getið alveg styrkt björgunarsveitirnar án þess að fara fram á eitthvað(mengandi flugelda) í staðinn. Þannig virka góðverk líka best.
— Elín Jónasdóttir (@elinbjon) December 28, 2020