Magnús fengið nóg: „Komusalurinn er tveggja tíma stórslys!“

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri sölu hjá Símanum, gagnrýnir Isavia harðlega en eins og kunnugt er sér hið opinbera hlutafélag um reklstur og viðhald flugvalla hér á landi.

Magnús lét til sín taka á Twitter í gær þar sem hann sagði:

„Kæra Isavia. Nú eru komnir 18 mánuðir af Covid og allir flugvellir í heiminum komnir í lag nema KEF. Komusalurinn þar er enn tveggja tíma stórslys! Endurtek tillögu mína um að þið takið fókusinn af nammi- og nærbuxnasölu þar til þetta er eðlilegt,“ segir Magnús sem vísar þarna í eldri færslu frá 18. október síðastliðnum.

„Mesta sýkingarhættan á ferðalögum eru endalausar þvögur og biðraðir í KEF. Legg til að starfsmenn Isavia hætti að pranga sælgæti og nærfatnaði inná ferðamenn og einbeiti sér að þvi að koma fólki í gegnum flugvöllinn.“