Magnús fékk Co­vid-19: Þetta segir hann um ís­lensk heil­brigðis­yfir­völd

Magnús Óla­son, fyrr­verandi fram­kvæmda­stjóri lækninga á Reykja­lundi, er í hópi þeirra rúm­lega 800 Ís­lendinga sem greinst hafa með Co­vid-19. Magnús sagði frá þessu í opinni færslu á Face­book.

Magnús hrósar ís­lenskum heil­brigðis­yfir­völdum í há­stert og segir að þegar upp verður staðið muni heil­brigðis­yfir­völd hér á landi fá hæstu mögu­legu ein­kunn fyrir frammi­stöðu sína á al­þjóða­mæli­kvarða.

„Hafandi verið eitt af fórnar­lömbum co­vid smitsins sl rúmar 2 vikur verð ég að segja að tríóið sem stýrir um­ræðunni og co­vid-teymi LSH og Heilsu­gæslunnar hefur sýnt al­ger­lega ein­stæða fag­mennsku. Það er fylgst mjög vel með sjúk­lingunum og hvað er tryggara en að fá upp­hringingu til að byrja með dag­lega frá hjúkrunar­fræðingi eða öðru heil­brigðis­starfs­fólki sem fer yfir stöðuna og gefur hug­hreystandi og fag­leg ráð. Svo ef ein­hver versnun verður þá fær maður opna línu til sér­fræðings til að ræða málin. Al­gjör­lega frá­bært,“ segir hann.

Magnús tjáir sig um veikindin í sam­tali við RÚV en hann fór í sótt­kví á­samt eigin­konu sinni eftir komuna frá Banda­ríkjunum fyrir skemmstu. Ferða­fé­lagi þeirra hafði greinst með CO­VID-19.

Magnús segir að veiran hafi ekki lagst þungt á hann og hann hafi aðal­lega fengið bein­verki, hita og slapp­leika. Hann hafi talið að hann væri að verða hress síðast­liðinn sunnu­dag en þá hafi hitinn komið aftur. Magnús segir að þessi pest sé ekki lík neinni sem hann hefur fengið um ævina.

„Þetta er al­gjör skíta­pest og allt öðru­vísi. Maður er alveg þrek­laus og drullu­slappur,“ segir hann.