Magnús fær endurtekna martröð – Athugasemd Baldvins sló í gegn

Magnús fær endurtekna martröð – Athugasemd Baldvins sló í gegn

Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Símans, sagði á Twitter-síðu sinni frá síendurtekinni martröð sem hann fær.

Draumurinn, eða martröðin eins og Magnús segir, lýsir sér svona:

„Mér er boðið í Kastljós. Þegar þangað kemur er mér ætlað að syngja Abba Labba Lá við undirleik Snorra Sigfúsar Birgissonar. Við höfum aldrei æft þetta og ég kann ekki textann. Útsending er að hefjast...“

Martröðin virðist ekki ná lengra en þetta og bendir einn á að þetta þýði að hann sé klárlega að fara að vinna í lottóinu. Baldvin Þór Bergsson, ritstjóri Kastljóss, skrifaði einnig athugasemd við færsluna og sló í gegn með henni eins og sjá má hér að neðan.