Óhætt er að segja að Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri sölu hjá Símanum, hafi fengið að heyra það á Twitter eftir að hann beindi ákveðnum tilmælum til starfsfólks verslana.
„Kæra afgreiðslufólk. Vinsamlega látið af þessu enskuskvaldri ykkar um að eiga góðan dag.“
Magnús vill sennilega meina að setningin „eigðu góðan dag“ sé bein þýðing á „have a good day“.
Það eru þó langt því frá allir sammála Magnúsi og eru þeirrar skoðunar að það sé í góðu lagi að segja fólki að eiga góðan dag. Einn spyr hverju Magnús stingur upp á að segja í staðinn.
„Takk fyrir viðskiptin. Vertu sæll. Gangi þér allt í haginn. Hvað sem er. Er bara að biðja um að fólk tali íslensku,“ svarar Magnús um hæl.
Eins og sést á þessum athugasemdum hér undir fékk Magnús heldur kaldar kveðjur frá netverjum.
- „Þannig að þér finnst boðháttur jaðra við að vera dónalegur? Tekurðu því illa þegar fólk segir við þig vertu sæll eða hafðu það gott?“
- „Þetta er mest pirrandi tíst dagsins, það er ágætis regla að vera ekki pylsufasisti. Að leggja sig fram við að skilja fólk er alltaf betra en að pirra sig á framburði, að vera næs kemur ekki málfræði við.“
- „Þú ert ástæða þess að afgreiðslufólk gefst upp á að reyna að sýna kurteisi, það fær nefnilega á tilfinninguna að það sé sama hvað það gerir, viðskiptavinurinn er alltaf pirraður.“
- „Sú sem tekur á móti guttanum í leikskólanum á morgnana segir þetta alltaf. Þykir þetta vinalegt og fínt inn í daginn. "Takktakk, sömuleiðis" er svarið mitt jafnan. Smá bros með. Þú getur prófað það næst. Virkar fínt.“
- „Öllu er nú hægt að tuða yfir, meira að segja kurteisi.“
Kæra afgreiðslufólk. Vinsamlega látið af þessu enskuskvaldri ykkar um að eiga góðan dag.
— Magnus Ragnarsson (@MagnusRagnars) June 6, 2021