Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið manni að bana í Barðavogi um helgina heitir Magnús Aron Magnússon, en hann er fæddur árið 2001.
DV greinir frá þessu, en í frétt miðilsins kemur fram að Magnús hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. júlí næstkomandi og að það liggi fyrir að hann hafi ekki kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar.
Þó hafi lögregla ekki viljað gefa upp hvort hann hafi játað eða neitað því að hafa framið voðaverkið.
Þá kemur fram að Magnús búi með móður sinni í risíbúð hússins þar sem verknaðurinn var framinn, en hinn látni í kjallara sama húss.
Magnús hefur áður vakið athygli, en árið 2019 birtist mynd af honum í Fréttablaðinu þar sem hann var handtekinn vegna ofbeldisfullrar hegðunar í garð mótmælenda á Austurvelli sem þá lýstu stuðningi við flóttamenn.
Í frétt DV kemur fram að ekki liggi fyrir hvort hann sé sakhæfur en lögregla meti nú andlegt ástand hans.