Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri sölu hjá Símanum, veit sitthvað um íslenskt sjónvarp og íslenska dagskrárgerð enda verið lengi í bransanum.
Magnús tók sig til á Twitter á dögunum og valdi sjónvarpsmann ársins 2021.
„Margrét Lára Viðarsdóttir er orðin sjónvarpsmaður ársins. Frábær,“ sagði Magnús eftir landsleik Íslands og Rúmeníu á dögunum. Margrét Lára var svo aftur í sjónvarpinu í gærkvöldi eftir leik Íslands og Makedóníu í undankeppni HM.
Margrét Lára hefur starfað sem sérfræðingur í kringum landsleiki Íslands undanfarin misseri og staðið sig með mikilli prýði. Þá hefur hún einnig verið sérfræðingur í Vellinum, sjónvarpsþætti Símans um enska boltann í umsjón Tómasar Þórs Þórðarsonar.
Margrét Lára er ein besta knattspyrnukona í sögu íslensku þjóðarinnar og ljóst að hún hefur mikla þekkingu á leiknum sem skilar sér svo sannarlega heim í stofu.
Margrét Lára Viðarsdóttir er orðin sjónvarpsmaður ársins. Frábær.
— Magnus Ragnarsson (@MagnusRagnars) November 11, 2021